Sunday, June 29, 2008

long tæm

Köben er awesome eins og ég segi ósjaldan..

Ég verð samt að viðurkenna að ég sakna ykkar smá þarna á íslandi!

Hulda og Jóhanna komu í heimsókn síðustu helgi til að eyða öllum júnilaununum! Það var skrautleg ferð með nokkrum stoppum á LA bar og eitthvað rugl á CultureBox.. það var stórfurðulegt kvöld í gangi og klósettin ekki alveg eins og flestir kjósa að hafa þau. Þeas í heilu lagi!! Þetta var hin fínasta helgi f. utan slappleika hjá mér sem hélst svo alveg út vinnuvikuna og þessa helgi! Annars er ég orðin hress núna og til í tuskið á Roskilde Festival!!!

Ég er semsagt að fara þangað með DagToni og við erum allerede búin að redda okkur tjaldi og vinnufríi! Þá er bara svefnpoki og smá djús sem þarf! Veðurspáin er hin fínasta og ætla ég að vera í bikinítoppnum innanundir alla helgina.. svona til öryggis! Alltaf gott að nýta veðrið til að tana..
Ég hef samt smá áhyggjur af vömbinni sem er að myndast. Þessvegna er ég byrjuð að skokka og fullt af magaæfingum á hverjum degi!! Dugir ekkert minna ef maður ætlar að vera beib á Rhodos. og líka bara framvegis í köben!

Annars er mest lítið að frétta. ég er bara að vinna og vinna og vinna á Thomas Sandwich. Svo eru ófáar bæjarverslunarferðirnar sem ég og dagny höfum farið í eftir vinnu. Frekar mikil freisting að vera að vinna við hliðina á strikinu!!

Þetta hef ég keypt síðan ég kom:
Skó
3 jakka
2 pils
hlíraboli í tugatali
brjóllukjól
skartgripi í massavís
tösku

og svona sitthvað skemmtilegt..

Annars er ég bún að velja mér nokkur skópör og hluti sem ég mun eignast um mánaðamótin þegar ég fæ 70 þús kallinn minn:D (fyrir 40 tíma vinnu btw) AWESOME

Annars skulda ég alveg roskilde miðann og eitthvað meira..

Mig langar samt rosalega að kíkja til Norge á hana söndru líka, svo kannski einhver hluti launanna fari í það.. svo á ég líka afmæli eftir 6 daga!! ég býst við gjöfum takk!!

En já, það sem er næst á dagskrá hér á Esplanaden er chill í kvöld og svo heilla tomma homma uppúr skónum í vinnunni á mrg! Eins og ég geri best.. bara 4 vinnudagar, og svo beeeeint á Roskilde Festival 2008;D

Sæl að sinni, HillaBjööö

1 comment:

Sandra said...

Eg er megamassa anægd med tetta blogg hja ter! Vel tess virdi ad lesa...haha tu ert mikid duglegri ad versla en eg. Hef ekki keypt mer svo mikid sem sokka med gati herna i Noregi!!