Monday, June 2, 2008

Dansk, ja tak!

Jæja, núna er sumarið sko komið.. síðasta vika er búin að vera best, mér líður bara eins og maður sé í sólarlöndum svona þegar maður finnur sólarvarnarlyktina. Mmmm..

Í dag komu Auður, Erna og afi og þau ætla að vera hérna í viku!! Erum bara búnar að liggja í garðinum og nýta sólina. Fórum líka í smá göngutúr þar sem Erna gat fengið einhverja útrás. Ég og Auður ætlum svo að kíkja á kaffihús í kvöld.

Í gær fórum við á ströndina.. Samt meira svona liggja í einhverju grasi við sjóinn í Charlottenlund og keyrðum svo meðfram ströndinni hérna á Sjálandi í svona klt til að finna okkur að borða.. Svo fórum við enn lengra til Gilleleje og löbbuðum eð á ströndinni þar og kíktum á aðra strönd þar líka. Þetta var bara hinn fínasti dagur þar sem ég uppskar næs lobsterface. Auði brá samt í dag þegar hún sá mig, hvað ég væri orðin brún á stuttum tíma;). Þó svo að mér finnist ég enn voða hvít..

Ég er búin að sækja um vinnu á 2 stöðum í viðbót. Í Fields verslunarmiðstöðinni, í einhverri Bangsabúð og svo í súkkulaðibúð. En þar sem danir eru voða tregir er ég ekkert að búast við svari fyrren eftir svona mánuð.. án gríns! Væri svosem til í að vera atvinnulaus allan júni bara og vinna svo eins og maniac í júlí til að geta lifað á Rhodos.. Ætla neflinlega bara að reyna að fá vinnu á íslandi með skólanum þegar ég kem heim.. Money er amk no issue hér í augnablikinu. Mig langar reyndar í fullt hérna.. svo ég ætti kannski að drífa mig að fara að raka inn peningum.

Ég sá Antonio Banderas í bænum um daginn.. Ég er svo handviss um að þetta hafi verið hann. Þetta var amk tvífari hans ef þetta var bara ekki hann. Maður labbaði svoleiðis framhjá rakspíra skýinu í kringum hann.

Nú styttist í Dagnýju og Huldu og Jóhönnu.. Hlakkaaa svo til, þá get ég loksins farið að gera eð af mér hérna;)

//Hilla

2 comments:

Sandra said...

OMG! sastu Zorro sjalfan?! Uff!

Jóhanna said...

17 dagar beibí!