Wednesday, June 4, 2008

Atvinnulausa

Heija

Ég er ekki enn komin með vinnu. Ég vann reyndar mikið í því í dag, gerði þessa fínu CV og fór með í búðir sem ég sá að vantaði fólk í! Mikið af þessu var reyndar bara hlutastarf en það er alveg fínt líka, þá er ég allavegana eitthvað að vinna! Vona bara að ég fái fljótt svar frá einhverjum af þessum stöðum. Ég sótti m.a. um í 2 skóbúðum (Dope og Aldo), Change nærfatabúð, ljósmyndastúdío, Thomas Sandwich, Hoppe's bar/café og svo í einhverri strákabúð. Það voru frekar sætir strákar í búðinni og á Hoppes. Líka á Thomas reyndar, gæji sem ég hef verið með thing fyrir síðan ég sá hann fyrst f. ári;) OMG ÉG TALAÐI VIÐ HANN Í DAG.. nei ok slökum

Ég og auður erum annars bara búnar að vera að njóta lífsins hérna. Alltaf í bænum eða að tana í garðinum. Hún fór með mér í bæinn í dag til að Jobhunta og okkur tókst að kaupa okkur sitthvort bikiníið í HM (alveg eins bara grænt og appelsínugult) svo ætlum við geðveikt svalar í eins bikiníum á ströndina á morgun.

Í gærkvöldi kíktum við á kaffhús og fengum okkur smá að drekka. Ég fékk mér fínasta mojito sem tók svona hálftíma allt í alls að panta og búa til. Stelpurnar þarna voru svolítið tregar greyin. Annars þá sátum við þarna úti með teppi og undir hitalampa í mestu rólegheitum og þá komu einhverjir "gæjar" þarna og settust á næsta borð, sem var reyndar eiginlega sama borð og okkar, þau voru svo nálægt. Þessir gömlu hættu bara ekki að hlæja að okkur, þeim fannst eð voða sniðugt hvernig við töluðum og héldu að við skildum sko ekkert sem þeir sögðu. Sögðu m.a að við töluðum eins og einhverjar litlar grænar geimverur úr einhverri mynd! haha

Jæja ég vona nú að ég fari að fá vinnu bráðum, það á að fara að rigna í næstu viku. Þá hef ég ekkert að gera nema versla og maður þarf að eiga pening til þess.

Erol er að koma um helgina svo hún mun einkennast af Tivoli og Dýragarðsferðum held ég! Og tani as usual..

Sakna ykkar þarna á Íslandi, og líka í Norge:)

2 comments:

Sandra said...

A ad rigna i næstu viku!!:O Bara i Danmorku right???! Hehe ef tad verdur sol her ta sendi eg ter sma i poka;)

Sandra said...

Biddu biddu! Talandi um arfa...