Sunday, June 29, 2008

long tæm

Köben er awesome eins og ég segi ósjaldan..

Ég verð samt að viðurkenna að ég sakna ykkar smá þarna á íslandi!

Hulda og Jóhanna komu í heimsókn síðustu helgi til að eyða öllum júnilaununum! Það var skrautleg ferð með nokkrum stoppum á LA bar og eitthvað rugl á CultureBox.. það var stórfurðulegt kvöld í gangi og klósettin ekki alveg eins og flestir kjósa að hafa þau. Þeas í heilu lagi!! Þetta var hin fínasta helgi f. utan slappleika hjá mér sem hélst svo alveg út vinnuvikuna og þessa helgi! Annars er ég orðin hress núna og til í tuskið á Roskilde Festival!!!

Ég er semsagt að fara þangað með DagToni og við erum allerede búin að redda okkur tjaldi og vinnufríi! Þá er bara svefnpoki og smá djús sem þarf! Veðurspáin er hin fínasta og ætla ég að vera í bikinítoppnum innanundir alla helgina.. svona til öryggis! Alltaf gott að nýta veðrið til að tana..
Ég hef samt smá áhyggjur af vömbinni sem er að myndast. Þessvegna er ég byrjuð að skokka og fullt af magaæfingum á hverjum degi!! Dugir ekkert minna ef maður ætlar að vera beib á Rhodos. og líka bara framvegis í köben!

Annars er mest lítið að frétta. ég er bara að vinna og vinna og vinna á Thomas Sandwich. Svo eru ófáar bæjarverslunarferðirnar sem ég og dagny höfum farið í eftir vinnu. Frekar mikil freisting að vera að vinna við hliðina á strikinu!!

Þetta hef ég keypt síðan ég kom:
Skó
3 jakka
2 pils
hlíraboli í tugatali
brjóllukjól
skartgripi í massavís
tösku

og svona sitthvað skemmtilegt..

Annars er ég bún að velja mér nokkur skópör og hluti sem ég mun eignast um mánaðamótin þegar ég fæ 70 þús kallinn minn:D (fyrir 40 tíma vinnu btw) AWESOME

Annars skulda ég alveg roskilde miðann og eitthvað meira..

Mig langar samt rosalega að kíkja til Norge á hana söndru líka, svo kannski einhver hluti launanna fari í það.. svo á ég líka afmæli eftir 6 daga!! ég býst við gjöfum takk!!

En já, það sem er næst á dagskrá hér á Esplanaden er chill í kvöld og svo heilla tomma homma uppúr skónum í vinnunni á mrg! Eins og ég geri best.. bara 4 vinnudagar, og svo beeeeint á Roskilde Festival 2008;D

Sæl að sinni, HillaBjööö

Thursday, June 12, 2008

Samlokur og rigning!

Jæja það er langt síðan síðast..

En mikið hefur gerst!!

Á sunnudag komu langþráð Dagný og Anton hingað og ég sótti þau á flugvöllin. Frekar kjánaleg með nafnspjald og var ekki alveg viss hvort þau væru farin eða ekki því eg var frekar seint á ferðinni. En svo beið ég eftir þeim í svona 20 mín og var alveg að fara að gefast upp og þá loksins létu þau sjá sig! Við tókum svo taxa heim til þeirra þar sem tók við smá leit að íbúðinni þeirra.
Næst röltum við aðeins í bæinn, borða, heim til mín að sækja teppi og svo út í Churchill parken að tana og sofa. Nice dagur! Um kvöldið línuskautaði ég svo til þeirra og við kíktum eð í kristjaníu.

Annars hef ég bara verið að vinna mína þægilegu vinnu með sætu strákunum og mögulega með krökkunum í framtíðinni. Þau eru bæði búin aðkoma í prufu:D.. Nú er bara spurningin hvort við fáum öll frí eða verðum ekki sett á vakt þegar Hróaskelda er.. Ég ætla að væla mig út úr því. Ég á afmæli þá og ætla sko ekki að vinna. Ég ætla á Roskilde Festival!!!
Annars eru herdís og jakob líka að spá í að kíkja þá sem er niiice!!

Í gær gerði Anton svo við hjólið mitt meðan Dagný var í prufu svo ég er farin að geta hjólað með þeim hérna! Að launum buðu mamma og pabbi honum í mat hér eftir að hafa horft á fótboltann.

Sólin er farin. Eða hún er amk ekki eins falleg og hún hefur verið. Bara skúrir og rok hérna. En það er ágætt þá daga sem ég er að vinna. Minna að gera oog ég er ekki að missa neitt tansession.

Í kvöld ætlum við eð að hittast krakkarnir og á mrg verður DJ-amm. Strákur sem vinnur með mér sagði mér frá skemmtilegum stöðum sem ég heimta að prófa um helgina! Dreg líka Huldu og Jóhönnu á e-n af þeim stöðum. Bara VIKA í þær!! JEIJ


NIK OG JAY T'ONLEIKAR 'I AARHUS 19.Júli!!! ég þangað...

Faarin að borða..

Wednesday, June 4, 2008

Atvinnulausa

Heija

Ég er ekki enn komin með vinnu. Ég vann reyndar mikið í því í dag, gerði þessa fínu CV og fór með í búðir sem ég sá að vantaði fólk í! Mikið af þessu var reyndar bara hlutastarf en það er alveg fínt líka, þá er ég allavegana eitthvað að vinna! Vona bara að ég fái fljótt svar frá einhverjum af þessum stöðum. Ég sótti m.a. um í 2 skóbúðum (Dope og Aldo), Change nærfatabúð, ljósmyndastúdío, Thomas Sandwich, Hoppe's bar/café og svo í einhverri strákabúð. Það voru frekar sætir strákar í búðinni og á Hoppes. Líka á Thomas reyndar, gæji sem ég hef verið með thing fyrir síðan ég sá hann fyrst f. ári;) OMG ÉG TALAÐI VIÐ HANN Í DAG.. nei ok slökum

Ég og auður erum annars bara búnar að vera að njóta lífsins hérna. Alltaf í bænum eða að tana í garðinum. Hún fór með mér í bæinn í dag til að Jobhunta og okkur tókst að kaupa okkur sitthvort bikiníið í HM (alveg eins bara grænt og appelsínugult) svo ætlum við geðveikt svalar í eins bikiníum á ströndina á morgun.

Í gærkvöldi kíktum við á kaffhús og fengum okkur smá að drekka. Ég fékk mér fínasta mojito sem tók svona hálftíma allt í alls að panta og búa til. Stelpurnar þarna voru svolítið tregar greyin. Annars þá sátum við þarna úti með teppi og undir hitalampa í mestu rólegheitum og þá komu einhverjir "gæjar" þarna og settust á næsta borð, sem var reyndar eiginlega sama borð og okkar, þau voru svo nálægt. Þessir gömlu hættu bara ekki að hlæja að okkur, þeim fannst eð voða sniðugt hvernig við töluðum og héldu að við skildum sko ekkert sem þeir sögðu. Sögðu m.a að við töluðum eins og einhverjar litlar grænar geimverur úr einhverri mynd! haha

Jæja ég vona nú að ég fari að fá vinnu bráðum, það á að fara að rigna í næstu viku. Þá hef ég ekkert að gera nema versla og maður þarf að eiga pening til þess.

Erol er að koma um helgina svo hún mun einkennast af Tivoli og Dýragarðsferðum held ég! Og tani as usual..

Sakna ykkar þarna á Íslandi, og líka í Norge:)

Monday, June 2, 2008

Dansk, ja tak!

Jæja, núna er sumarið sko komið.. síðasta vika er búin að vera best, mér líður bara eins og maður sé í sólarlöndum svona þegar maður finnur sólarvarnarlyktina. Mmmm..

Í dag komu Auður, Erna og afi og þau ætla að vera hérna í viku!! Erum bara búnar að liggja í garðinum og nýta sólina. Fórum líka í smá göngutúr þar sem Erna gat fengið einhverja útrás. Ég og Auður ætlum svo að kíkja á kaffihús í kvöld.

Í gær fórum við á ströndina.. Samt meira svona liggja í einhverju grasi við sjóinn í Charlottenlund og keyrðum svo meðfram ströndinni hérna á Sjálandi í svona klt til að finna okkur að borða.. Svo fórum við enn lengra til Gilleleje og löbbuðum eð á ströndinni þar og kíktum á aðra strönd þar líka. Þetta var bara hinn fínasti dagur þar sem ég uppskar næs lobsterface. Auði brá samt í dag þegar hún sá mig, hvað ég væri orðin brún á stuttum tíma;). Þó svo að mér finnist ég enn voða hvít..

Ég er búin að sækja um vinnu á 2 stöðum í viðbót. Í Fields verslunarmiðstöðinni, í einhverri Bangsabúð og svo í súkkulaðibúð. En þar sem danir eru voða tregir er ég ekkert að búast við svari fyrren eftir svona mánuð.. án gríns! Væri svosem til í að vera atvinnulaus allan júni bara og vinna svo eins og maniac í júlí til að geta lifað á Rhodos.. Ætla neflinlega bara að reyna að fá vinnu á íslandi með skólanum þegar ég kem heim.. Money er amk no issue hér í augnablikinu. Mig langar reyndar í fullt hérna.. svo ég ætti kannski að drífa mig að fara að raka inn peningum.

Ég sá Antonio Banderas í bænum um daginn.. Ég er svo handviss um að þetta hafi verið hann. Þetta var amk tvífari hans ef þetta var bara ekki hann. Maður labbaði svoleiðis framhjá rakspíra skýinu í kringum hann.

Nú styttist í Dagnýju og Huldu og Jóhönnu.. Hlakkaaa svo til, þá get ég loksins farið að gera eð af mér hérna;)

//Hilla