Ég vona að þið séuð farin að sakna mín jafnmikið og ég sakna ykkar! Hér er reyndar frábært, sólin hefur ekki hætt að skína síðan ég kom og mín er að elska það!
Í dag fór ég jobhunting.. Það gekk svona ágætlega, fékk nafnspjöld og e-mail í einni skóbúð þar sem vantaði fólk og í barnafataverslun rétt hjá pabba vinnu. Ég er hinsvegar ekkert bjartsýn á að fá þessar vinnur þar sem Danir eru spes. Hér fara margir í skóla til að afgreiða og var ein konan þarna þvílíkt hissa á að ég hefði ekki unnið í verslun áður. Ekki eins og það þurfi einhver mega brains í þetta.. Ég labbaði reyndar alveg í 3 klt hérna um bæinn í nýjum skóm og uppskar ógeðslegar lappir sem minna á holdsveikt barn! Ég náði mér líka í semi-lobsterface og bringu..
Á mrg ætla ég að sækja um á Ítalska veitingastaðnum þar sem við borðuðum í fyrra stelpur..!!! Það vantar fólk þar eeen ég veit ekki alveg hvort maður eigi að treysta sér þangað. Það gæti orðið áhugavert reyndar.
Á morgun er stefnan tekin á að tékka með vinnu kannski á Amager og skella sér kannski í sólbað tli Kongens Have eða eð... Svo er það ströndin á sunnudag!
Maður þarf líka að fara að kaupa sér hlaupaskó hérna til að vera fit fyrir Rhodos. Ég geri ekki annað en að éta hérna..
I'm outie
Friday, May 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Lif titt snyst ekki um annad en mat...!
Post a Comment