Tuesday, May 27, 2008

Köööben

Jæja, þá er maður loksins kominn til Köben!
Lenti í fínasta veðri í gær og það var enn betra í dag, sól og 20 stiga hiti! Ég og mamma fórum í bæinn í dag og versluðum smá og leituðum að vinnu fyrir mig. Ég sá alveg 2 staði þar sem vantaði fólk og leit bara ágætlega út.. kaffihús/bar og samlokustaður. Annars ætla ég að reyna að redda mér bara vinnu á leikskóla svo ég fái að vera úti og í fríi um helgar! Ég ætla allavegana að vera í fríi hérna núna um helgina þarsem það er spáð 30 stiga hita og sól og pæling að skella okkur á ströndina.

Ég fór líka á Bodies sýninguna sem var frekar töff en ógeðslegt á sama tíma. Það hefur eð verið í umræðunni hérna úti að þetta séu kínverskir fangar sem voru gefnir í þetta! Ég vona ekki..

Ég hef nú ekki mikið meira að segja frá bjó bara til þetta blogg svo forvitnir gætu fylgst með mér hérna, sérstaklega Sandra í Norge!

-Hilla

2 comments:

Sandra said...

Eg er alveg drullu anægd med tig min kæra! Nu getum vid lika byrjad ad metast um tad hvor okkar verdur brunni! Eg brann i dag!
En svo verdur gaman tegar eg heimsæki tig og vid gerum eitthvad snidugt af okkur saman;)

kvedja ur solinni i Norge!

Unknown said...

i miss you hilla boo boo boo boo boo...bodies er svöl sýning..það er að segja ef þetta eru ekki kínverskir fangar...ef svo er er þetta bara sick :S hey ég er komin með frí í vinnunni 4-11 júlí :) ætla að reyna að kíkja til þín!