Ég vona að þið séuð farin að sakna mín jafnmikið og ég sakna ykkar! Hér er reyndar frábært, sólin hefur ekki hætt að skína síðan ég kom og mín er að elska það!
Í dag fór ég jobhunting.. Það gekk svona ágætlega, fékk nafnspjöld og e-mail í einni skóbúð þar sem vantaði fólk og í barnafataverslun rétt hjá pabba vinnu. Ég er hinsvegar ekkert bjartsýn á að fá þessar vinnur þar sem Danir eru spes. Hér fara margir í skóla til að afgreiða og var ein konan þarna þvílíkt hissa á að ég hefði ekki unnið í verslun áður. Ekki eins og það þurfi einhver mega brains í þetta.. Ég labbaði reyndar alveg í 3 klt hérna um bæinn í nýjum skóm og uppskar ógeðslegar lappir sem minna á holdsveikt barn! Ég náði mér líka í semi-lobsterface og bringu..
Á mrg ætla ég að sækja um á Ítalska veitingastaðnum þar sem við borðuðum í fyrra stelpur..!!! Það vantar fólk þar eeen ég veit ekki alveg hvort maður eigi að treysta sér þangað. Það gæti orðið áhugavert reyndar.
Á morgun er stefnan tekin á að tékka með vinnu kannski á Amager og skella sér kannski í sólbað tli Kongens Have eða eð... Svo er það ströndin á sunnudag!
Maður þarf líka að fara að kaupa sér hlaupaskó hérna til að vera fit fyrir Rhodos. Ég geri ekki annað en að éta hérna..
I'm outie
Friday, May 30, 2008
Wednesday, May 28, 2008
Sól sól sól
Í dag var geggjað veður. Ég byrjaði daginn bara á að sækja um að vinna á einhverri læknaráðstefnu hérna um helgina.. Þó svo mig langi í frí um helgina verð ég að fara að vinna fyrir Rhodos svo við getum nú dottið eð í það þarna.. Bara 2 mánuðir!!
Eftir að ég var komin í minipilsið og hlýrabolinn fóru ég og mamma svo með föt í fatahreinsunina og að kaupa fataskáp sem ég BAR heim!! Þetta var erfitt verkefni sem krafðist gríðarlegrar hæfni.. ég var næstum búin að rispa nokkra bíla. Við settum skápinn saman og núna hef ég loksins stað f. fötin mín!
Núna er ég bara að horfa á Friends og vonast til að það verði svona awesome veður í allt sumar.. Þá get ég orðið tönuð. Fyrst verð ég reyndar Lobsterwoman en eftir það ætti ég að verða eðalskinka
Heyrðu HULDA ég fann best í heimi fyrir okkur.. Þetta er risa dolla sem heitir "Tropical Drink Slush" og það er til SEX ON THE BEACH tegund!.. þetta er þannig að maður opnar þetta og setur vodka eða eð djúsí út í og svo í frystinn. Eftir smá stund er svo hægt að fá sér Sex on the Beach krap!! Við byrgjum okkur upp af þessu þegar þið komið;)
Hilla Lobsterface

Tuesday, May 27, 2008
Köööben
Jæja, þá er maður loksins kominn til Köben!
Lenti í fínasta veðri í gær og það var enn betra í dag, sól og 20 stiga hiti! Ég og mamma fórum í bæinn í dag og versluðum smá og leituðum að vinnu fyrir mig. Ég sá alveg 2 staði þar sem vantaði fólk og leit bara ágætlega út.. kaffihús/bar og samlokustaður. Annars ætla ég að reyna að redda mér bara vinnu á leikskóla svo ég fái að vera úti og í fríi um helgar! Ég ætla allavegana að vera í fríi hérna núna um helgina þarsem það er spáð 30 stiga hita og sól og pæling að skella okkur á ströndina.
Ég fór líka á Bodies sýninguna sem var frekar töff en ógeðslegt á sama tíma. Það hefur eð verið í umræðunni hérna úti að þetta séu kínverskir fangar sem voru gefnir í þetta! Ég vona ekki..
Ég hef nú ekki mikið meira að segja frá bjó bara til þetta blogg svo forvitnir gætu fylgst með mér hérna, sérstaklega Sandra í Norge!
-Hilla

Subscribe to:
Posts (Atom)