Hey hey yo yo peeeeps!!
Skemmtilegusta helgi lífs míns hingað til er nú afstaðin.. Það sökkar.
En ég á bestu minningar í heimi!!
Helgin einkenndist af hvítvíni, öðru víni, svita, raddleysi, lapdances, afmælissöngum, firepants & partypants og fleira og fleira!
Við mættum fyrst á fimmtudeginum. Ég og perla tókum lestina e. vinnu og vorum mættar í tjaldið um 18 eftir 2 tíma ferðalag og ráp á lestarstöðinni! Við fengum okkur þá smá að drekka og héldum uppá tónleikasvæði þar sem við sáum MGMT, Lupé Fiassco oog Radiohead!! Fórum reyndar soldið fyrr af svæðinu áður en Radiohead kláruðust og redduðum vindsængurpumpu frá ókunnugum rasistakennurum. Vorum kurteisar og skiluðum pumpunni. Svo var bara tjaldpartí/chill fílingur þetta kvöldið og ég var sofnuð snemma. Þeas um 4.. hehe
Föstudagurinn var AWESOME! Ég vaknaði og fór heim i sturtu.. var svo mætt aftur um 3 með nokkra vel valda drykki. Þá héldum við dagný á Band of Horses tónleika! Það var geeeðveikt! Hippastemningin alveg í hámarki. Á meðan fór Perla í pittinn hjá Gnarls Barkley í von um eyecontact;). Við Dagný kíktum svo á Gnarls. En röðin fremst á Kings of Leon var of freistandi svo við fórum og splæstum í smá White Wine karton og settumst í röðina. Þar biðum við í ca 2 klt eftir bandinu en það var totally WORTH IT. Við vorum alveg fremst, eða, það var einn f. framan okkkur. Svo þetta var BEST Í HEIMI!!! Fílingurinn var líka í hámarki og ég hef sjaldan verið jafn glöð og spennt yfir einu!
Eftir kings of leon var kvöldið sko ekki búið. Fórum í tjaldið og voða stuð. Skildi aðeins við stelpurnar og var með Antoni, en það var gott því á meðan redduðu þær mér afmælisgjöf!
Ég fékk fallegan mann að gjöf. Því klukkan var orðin hálf 2 og my B-day:D!
Þeir voru semsagt 2 vinir saman þarna og var Binni alveg meira en til í að vera gjöfin mín sem ég mátti leika mér með. Ég fékk frábærar móttökur þarna. Kom ókunnugur drengur hlaupandi í áttina að mér, henti mér upp á öxlina og hljóp með mig ut um allt!! hahaha hef aldrei lent í öðru eins. Þetta var líka partur af gjöfinni. Ókunnugi var líka íslenskur.. Eftir þetta fórum við voða stutt á Familien, eða ég þeas.. Dagnýu tokst að troða sér fremst. Við perla fórum annars bara í smá svaðilför.
Laugardagurinn = besti afmælisdagur í heimi byrjaði snemma. Sólin bakaði mann svo að það var ekki hægt að sofa lengur en til hálf 9 á mrgnana þarna. Ég fékk fullt af til hammó með ammó og afmælisfröllur frá D. Ég fór aftur heim í sturtu þar sem ég er með smá hreinlætisæði. Heima biðu mín blöðrur og glöð fjölskylda. Þar voru líka 2 kökur og 19 kerti! :D
Ég lagði mig og át og át og át. Á endanum var mér boðið út að borða og svo keyrð aftur á tónleikasvæðið. Ég hitti Dagnýu sem gaf mér FRÁBÆRA afmælisgjöf. Flottustu sólgleraugu í heimi, partypants og blómakrans. Hillan varð glöð, og þá sérstaklega f. gleraugun eins og myndir munu sýna. Hvtívín og afmælissöngvar einkenndu kvöldið. Fékk einn rappaðan frá gangsta dönum sem voru að kenna okkur nordjysk slaaaang. "Det er sejledermarme fedt djiggi djiggi djumm" Eða eitthvað í þessa áttina.. Perla gaf mér svo lapdance. Ekki frá henni persónulega, hún fann ástrala sem var til í allt. Svo kom annars í salmoncolored partypants sem vildi endilega joina. Ég og sólgleraugum skemmtum okkur konunglega.
Næst voru tónleikar með Girltalk. Hilla, Dagny, Perla og Sunna tóku staðinn gersamlega yfir með awesome dancemoves! Þetta var fáránlega skemmtilegt!
Næst þurftum við að undirbúa okkur f. Chemical Brothers. Fórum í tjaldið og á leiðinnji var ráðist á dagnyju með vatnsbyssum. Ég dó úr hlátri og fékk árás í staðin. Smá feis..
Partypants voru settar á og ég týndi Dagnýu. Var samt með skemmtilegum strákum á meðan dagný sendi óskiljanleg sms.. Chemical Brothers voru AWESOME!! gott útireif! og frábært show.
Kvöldið var svo rosaskemmtilegt þegar tónleikarnir kláruðust. Bara popp og movies.. svona basicly. Movies í boði Fróða (ekki tóta) og dana með gellu. Hilla, arnar og dagný gáfu myndinni samt ekki svo margar stjörnur. Röddin mín lét ekki sjá sig allan daginn, eftir að hafa horfið á föstudeginum.
Eftir þennan frábæra afmælisdag langaði mig ekkert að fara að sofa. Þó svo að tæknilega séð væri kominn 6. júlí fékk ég alveg að njóta afmælisins þessa nótt líka! Get ekki annað sagt en þetta var besti afmælisdagur i heimi. Þó svo ég hafi orðið f. miklum vonbrigðum með nokkra af góðvinum mínum, sem hljóta að hafa gleymt mér.. Herdís, Ívar og Guðmunda fá þó stór verðlaun f. að hringja og muna og vera best í heimi!! Dagny og Perla fá líka verðlaun fyrir að vera skemmtilegustu afmælisfélagar í heimi og fyrir virkilega frumlegar gjafir!! Hulda fær líka prize f. flott myspace komment og að fagna afmælinu mínu á Írskum dögum. Ástþór vinur okkar átti einmitt líka afmæli þá.. góður dagur
Ég fór aftur hiem í sturtu á sunnudeginum og lagði mig í sófanum. Um kvöldið var svo Hot Chip og Jay-Z sem var FRIGGIN AWESOME. Eins og bara hátíðin í hnotskurn. Hér fékk ég þó röddina. Þeas heima og um morgunin, en strax og ég mætti aftur fór hún.!
Jay-Z kom verulega á óvart. Vorum í pittinum að bootyshakea our booties off!! Hann var of svalur þarna með crewinu sínu og blinginu. Lentum í mega rigningu þarna sem skapaði frááábæra stemmingu!
ég og perla vorum svo komnar hingað heim kl. 3 í nótt eftir mjög þægilegt ferðalag og ég rotaðist gersamlega!
Thomas var svo góður að gefa okkur frí í dag. Hefði ekki getað mætt í vinnu. Hálf raddlaus og uppgefin.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra.. Langaði bara rosa mikið að deila þessu með ykkur á íslandi sem lesið þetta:D Kemst ekki yfir hvað þetta var gaman!!!!!
Hilsen Hilla sem er orðin 19 ára